120 ára afmæli Sögufélags: Öldungur ungur í anda

Sögufélag fagnar 120 ára afmæli þann 7. mars 2022. Félagið var stofnað árið 1902 með það að markmiði að gefa út tímarit, heimildarit og annað efni um sagnfræði og söguleg efni, einkum um sögu Íslands. Enn í dag er félagið helsti útgefandi rita af þessu tagi og vinnur ötullega að því að auka þekkingu, skilning […]

Aðalfundur og Ættarnöfn

Aðalfundur Sögufélags var haldinn þann 15. febrúar síðastliðinn í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf og var fundarstjóri Kristín Svava Tómasdóttir. Skýrslu stjórnar flutti Hrefna Róbertsdóttir forseti, og Helga Maureen Gylfadóttir gjaldkeri lagði fram skoðaða reikninga til samþykktar. Á fundinum voru einnig lagðar fram lagabreytingar sem samþykktar voru samhljóða af fundarmönnum. Ný lög tóku […]

Tvær tilnefningar til Hagþenkis

Til­kynnt var þann 9. febrúar 2022 hvaða tíu bæk­ur eru til­nefnd­ar til Viður­kenn­ing­ar Hagþenk­is, fé­lags höf­unda fræðirita og kennslu­gagna, fyr­ir út­gáfu­árið 2021. Tvær bækur sem tengjast Sögufélagi fengu tilnefniningu til verðlaunanna. Már Jóns­son (rit­stjóri). Gald­ur og guðlast á 17. öld. Dóm­ar og bréf I-II. Umsögn dómnefndar: „Rit sem opn­ar greiða leið að frum­heim­ild­um um galdra­mál […]

Aðalfundur Sögufélags

Aðalfundur Sögufélags verður haldinn þann 15. febrúar næstkomandi í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, kl. 18:00–19:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf en einnig verða lagðar fram tillögur að lagabreytingum sem félagsmenn geta kynnt sér hér.   Eftir stutt hlé mun Páll Björnsson flytja erindið „Deilt um ættarnöfn á Íslandi í 170 ár“. Sögufélag gaf út bók Páls […]

Þrjár bækur Sögufélags fá fimm stjörnur í Morgunblaðinu

Björn Bjarnason fór fögrum orðum um Fulltrúa þess besta í bandarískri menningu eftir Hauk Ingvarsson í Morgunblaðinu. Hann sagði meðal annars:  „Að finna þráð til að kynna nýja söguskoðun á trúverðugan hátt, er vandasamt. Að gera það með svo sterkum rökum að ekki sé unnt að hafa nýju kenninguna að engu, krefst mikilla rannsókna, þekkingar og […]

Konur sem kjósa hlýtur evrópsk hönnunarverðlaun!

Snæfríð Þorsteinsdóttir og Hildigunnur Gunnarsdóttir hlutu gullverðlaun Art Directors Club Europe fyrir hönnun sína á Konur sem kjósa. FÍT, Félag íslenskra teiknara, er aðili að ADCE en fremstu verk hvers lands eru send í keppnina sem svo eru dæmd af 53 fagaðilum frá 19 löndum í Evrópu. Konur sem kjósa hreppti gullið í flokknum Editorial design.  Þetta eru önnur gullverðlaunin sem Snæfríð […]

Bækur Sögufélags á Reykjavík Art Book Fair

Tvær nýjar bækur frá Sögufélagi voru valdar inn á Listbókamessu í Reykjavík (e. Reykjavík Art Book Fair) sem fór fram í Ásmundarsal helgina 12.-14. nóvember. Það voru bækurnar Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu eftir Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur og Ættarnöfn á Íslandi eftir Pál Björnsson. Báðar bækurnar eru hannaðar af Arnari&Arnari sem eru margverðlaunaðir fyrir bókahönnun.  […]

Nýir þættir af Blöndu

Á síðustu vikum og mánuðum hafa komið út nokkrir nýir þættir af Blöndu: Hlaðvarpi Sögufélags. Þættirnir eru aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á sogufelag.is #13 Jón Karl Helgason um Ódáinsakur Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Karl Helgason um bók hans Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga sem kom út hjá Sögufélagi árið 2013. Jón ræðir íslenska þjóðardýrlinga, á […]

Konur sem kjósa í alla framhaldsskóla

Í tilefni kosninga hefur stjórn Sögufélags í samstarfi við Íslandsbanka og Eyri Invest ákveðið að gefa öllum bókasöfnum framhaldsskóla landsins eintak af bókinni Konur sem kjósa – Aldarsaga. Með gjöfinni fylgja einnig eintök af bókum Sögufélags frá 2018 um fullveldi Íslands, Hinir útvöldu. Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918 og Frjálst og fullvalda ríki. Ísland […]

Tilkynningar frá Sögufélagi

Skrifstofa Sögufélags lokar 1. júlí vegna sumarleyfa en opnar aftur eftir verslunarmannahelgi þriðjudaginn 3. ágúst.  Vandamál við dreifingu á vorhefti Sögu Vorhefti Sögu fór í dreifingu í fyrstu viku júní fyrir Sögukvöldið sem haldið var þann 10. júní. Samið hafði verið við nýja dreifingaraðila um heimakstur á höfuðborgarsvæðinu og því miður fylgdu því miklir byrjunarerfiðleikar. […]