Aðalfundur Sögufélags 23. nóvember kl. 18.30-19.30
nóvember 2016 Aðalfundur Sögufélags verður haldinn í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, fimmtudaginn 23. nóvember kl. 18.30-19:30. Í framhaldi af aðalfundinum verður höfundakvöld kl. 20 með kynningu og umræðum um nýútkomnar bækur Sögufélags.
Sögukvöld í Gunnarshúsi 13. júní
águst 2016 Laugardaginn 13. maí síðastliðinn stóðu Sögufélag og Sagnfræðistofnun fyrir vel heppnuðu málþingi til heiðurs Önnu Agnarsdóttur í tilefni af sjötugsafmæli hennar, en Anna lætur nú af störfum sem prófessor í sagnfræði við skólann. Anna Agnarsdóttir gegndi embætti forseta Sögufélags frá 2005 til 2011 – og varð þar með fyrsta konan til að gegna […]
Anna Agnarsdóttir nýr heiðursfélagi Sögufélags
águst 2016 Laugardaginn 13. maí síðastliðinn stóðu Sögufélag og Sagnfræðistofnun fyrir vel heppnuðu málþingi til heiðurs Önnu Agnarsdóttur í tilefni af sjötugsafmæli hennar, en Anna lætur nú af störfum sem prófessor í sagnfræði við skólann. Anna Agnarsdóttir gegndi embætti forseta Sögufélags frá 2005 til 2011 – og varð þar með fyrsta konan til að gegna […]
Brautryðjendaverk Lofts Guttormssonar í enskri þýðingu
apríl 2017 Þann 14. apríl var haldið útgáfuhóf í Gunnarshúsi í tilefni af útgáfu enskrar þýðingar á hinu klassíska riti Lofts Guttormssonar, Bernska, ungdómur og uppeldi á einveldisöld. Það kom fyrst út árið 1983 og var brautryðjendaverk á sviði lýðfræði og fjölskyldusögu á Íslandi. Loftur hafði sterk tengsl við Sögufélag og var forseti þess frá […]
Bréf Jóns Thoroddsens
oktober 2016 Út er komin bókin Bréf Jóns Thoroddsens í ritstjórn Más Jónssonar. Jón Thoroddsen (1818-1868) er þekktur fyrir skáldsögur sínar Pilt og stúlku frá 1850 og Mann og konu, sem kom út að honum látnum, auk þess sem mörg ljóða hans lifa góðu lífi í söng og lestri. Hann var lengi sýslumaður í Barðastrandarsýslu […]
Auðnaróðal. Baráttan um Ísland 1096-1281
águst 2016 Út er komin bókin Auðnaróðal. Baráttan um Ísland 1096-1281 eftir Sverri Jakobsson. Á fáeinum áratugum tók íslenskt samfélag stakkaskiptum og varð eins og önnur evrópsk miðaldasamfélög. Valdabarátta höfðingja náði hámarki á árunum 1220–1264 sem hafa oft verið nefnd Sturlungaöld. Hér eru pólitísk átök þessara ófriðarára greind og sett í nýtt samhengi þar sem […]
Landsnefndin fyrri / Den islandske landkommission 1770-1771 I
apríl 2016 Landsnefndin fyrri var þriggja manna nefnd á vegum konungs sem ferðaðist um Ísland í eitt og hálft ár og safnaði upplýsingum um land, þjóð og aðstæður í samfélaginu. Í bókinni birtast uppskriftir af bréfum, sem íslenskur almenningur skrifaði til nefndarinnar. Kennir þar margra grasa og er einstakt að eiga heimildir frá lokum 18. […]