Landsnefndin fyrri / Den islandske landkommission 1770-1771 I

Landsnefndin fyrri var þriggja manna nefnd á vegum konungs sem ferðaðist um Ísland í eitt og hálft ár og safnaði upplýsingum um land, þjóð og aðstæður í samfélaginu. Í bókinni birtast uppskriftir af bréfum, sem íslenskur almenningur skrifaði til nefndarinnar. Kennir þar margra grasa og er einstakt að eiga heimildir frá lokum 18. aldar sem skrifaðar eru af bændum og búaliði þar sem þeir lýsa sínum eigin kjörum.

Í skjalasafni Landsnefndarinnar eru bréf frá almenningi, prestum, sýslumönnum og öðrum embættismönnum auk greinargerða og margvíslegra gagna frá nefndarmönnum sjálfum. Embættismenn landsins fengu sértækar spurningar frá nefndinni um allar hliðar samfélagsins á Íslandi, svo sem um fólksfjölda, kirkju, heilbrigðismál, verslun, handverk, landbúnað, sjávarútveg, samgöngur og margt fleira. En almenningur var hvattur til að senda nefndinni sína sýn á landsins gagn og nauðsynjar að ógleymdum eigin aðstæðum.  Skjöl Landsnefndarinnar varpa ljósi bæði á sögu Íslands og Danmerkur og gefa einstæða innsýn í samfélagið um 1770.

Skjalasafn Landsnefndarinnar fyrri er stórt að vöxtum,, 4200 handritaðar síður, og er varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands. Safnið er hluti af skjölum dönsku stjórnarskrifstofanna og var afhent til Íslands með sérstökum samningi frá Danmörku árið 1928.

Um þessar mundir er unnið að heildarútgáfu Landsnefndarskjalanna á vegum Þjóðskjalasafns, Sögufélags og Ríkisskjalasafn Danmerkur.  Bækurnar verða sex talsins, með uppskriftum skjala og fræðilegum greinum, auk vefbirtingar ljósmynda af frumskjölunum og uppskrifta á þeim.

Landsnefndarskjölin gefa einstæða innsýn inn í hugarfar, venjur og siði almennings og embættismanna, auk afstöðu danskra stjórnvalda til þeirra fjölmörgu mála sem Íslendingar gerðu að umtalsefni í lok 18. alda