Bréf Jóns Thoroddsens

Út er komin bókin  Bréf Jóns Thoroddsens í ritstjórn Más Jónssonar. Jón Thoroddsen (1818-1868) er þekktur fyrir skáldsögur sínar Pilt og stúlku frá 1850 og Mann og konu, sem kom út að honum látnum, auk þess sem mörg ljóða hans lifa góðu lífi í söng og lestri. Hann var lengi sýslumaður í Barðastrandarsýslu og Borgarfirði. Í bókinni eru einkabréf til Jóns og frá honum ásamt úrvali embættisbréfa hans. Meðal þeirra sem hann skrifaðist á við voru Brynjólfur Pétursson, Gísli Brynjúlfsson, Jón Árnason bókavörður og þjóðsagnasafnari, Jón Pétursson yfirdómari og Jón forseti. Enn merkari eru þó bréf Jóns til unnustu sinnar, Ólafar Thorlacius, sem síðar giftist öðrum manni, og dóttur þeirra Elínar. Í bréfum Jóns gætir ávallt persónulegra tilþrifa sem sýna skapgerð hans og kímnigáfu. Bókinni er ætlað að bregða birtu á manninn á bak við skáldskapinn, einstaklinginn og embættismanninn.

Már Jónsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.