Höfundur
Jón Kristinn Einarsson
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2022
ISBN
9789935466303
Blaðsíðufjöldi
264
Ritstjóri
Már Jónsson
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Unavailable

Jón Steingrímsson og Skaftáreldar

Jón Kristinn Einarsson

4.800kr.

Í miðjum móðuharðindum sumarið 1784 sendi Lauritz Thodal stiftamtmaður séra Jón Steingrímsson með sex hundruð ríkisdali til sýslumannsins í Vík í Mýrdal. Þetta var stórfé á þess tíma mælikvarða og átti að nýta til að endurreisa byggð í vesturhluta Skaftafellssýslu. Á leiðinni opnaði séra Jón sendinguna og deildi ófáum ríkisdölum út til nauðstaddra sem og sín sjálfs. Sú ákvörðun mæltist illa fyrir og Jón var kærður til yfirvalda í Kaupmannahöfn.

Í bókinni er þetta mál greint á grundvelli áður ókannaðra heimilda. Fram kemur nýtt sjónarhorn á móðuharðindin, þar sem tekist var á um neyðarhjálp með gjörólíkum áherslum íslenskra og danskra embættismanna.

Í viðauka eru prentaðar lýsingar séra Jóns og annarra á Skaftáreldum auk nokkurra bréfa sem veita innsýn í samskipti manna sumarið 1784. Már Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands bjó skjölin til útgáfu.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.