Fréttabréf Sögufélags: febrúar 2020
Sögufélag hefur gefið út fréttabréf fyrir febrúrar. Fréttabréfið getur þú nálgast hér fyrir neðan Febrúar 2020 Þú getur skoðað öll fréttabréfin okkar hér
Bókamarkaðurinn á Laugardalsvelli opnar í dag
Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda (FÍBÚT) opnar á Laugardalsvelli í dag. Sögufélag, líkt og undanfarin ár, er með bás á markaðnum þar sem hægt er að kaupa bækur félagsins á kostakjörum. Meðal þess sem er í boði eru Smárit Sögufélags, Hinir útvöldu eftir Gunnar Þór Bjarnason, verðlaunabókin Stund klámsins eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur og margt fleira. Allt á gjafaverði. Bókamarkaðurinn […]
Steinunn Kristjánsdóttir
Steinunn Kristjánsdóttir er prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands. Árið 2012 gaf Sögufélag út bók hennar um Skriðuklaustur í Fljótsdal. Bókin hlaut Fjöruverðlaunin fyrir bækur í flokki fræðirita og var tilnefnd til Viðurkennningar Hagþenkis og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bækur eftir höfund Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm aldir
Gunnar Þór Bjarnason
Gunnar Þór Bjarnason fæddist á Ísafirði 1957. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, lauk BA-prófi frá í sagnfræði og þýsku frá Háskóla Íslands, MA-prófi í alþjóðasamskiptum frá sama skóla og stundaði framhaldsnám í sagnfræði í Þýskalandi. Hann kenndi í mörg ár við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og hefur lengi verið stundakennari við Háskóla Íslands. Gunnar […]
Smári Geirsson
Smári Geirsson (f. 1951) stundaði nám í þjóðfélagsfræðum við Háskóla Íslands og lauk B.A. prófi 1976. Síðan lá leiðin í Háskólann í Björgvin í Noregi þar sem hann nam stjórnsýslufræði og lauk prófi 1971. Námi í uppeldis- og kennslufræðum við Háskóla Íslands lauk hann 1980. Smári hefur fengist við kennslu og ritstörf og var skólameistari […]
Unnur Birna Karlsdóttir
Unnur Birna Karlsdóttir (f. 1964) lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2010. Hún hefur sent frá sér ýmis fræðirit og fræðigreinar um samband manna og náttúru á Íslandi. Rannsóknin á sögu hreindýra á Íslandi er stærsta verk hennar á því sviði hingað til. Unnur Birna er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Austurlandi. […]
Björk Ingimundardóttir
Björk Ingimundardóttir fæddist árið 1943 á Hæli í Flókadal og er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún starfaði á Þjóðskjalasafni 1971‒2013 og hefur komið að útgáfu fjölda bóka, þar má nefna fyrsta bindi Yfirréttarins á Íslandi, Skjalasafn landfógeta 1695‒1904 og Byggðir Borgarfjarðar. Árið 2011 var Björk gerð að heiðursfélaga í Sagnfræðingafélagi Íslands. Bækur eftir höfund Prestaköll, […]
Öræfahjörðin hlýtur aðra tilnefningu!
Skammt er stórra högga á milli hjá Unni Birnu Karlsdóttur og Sögufélagi. Skömmu eftir að ljóst varð um tilnefningu Öræfahjarðarinnar: Sögu hreindýra á Íslandi til Íslensku bókmenntaverðlaunanna var tilkynnt að hún ætti einnig möguleika á að fá Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlauna kvenna árið 2020. Þann 3. desember var tilkynnt við skemmtilega athöfn í Borgarbókasafninu í Grófinni […]
Öræfahjörð Unnar Birnu hlýtur tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Á fullveldisdaginn sjálfan 1. desember var tilkynnt hvaða höfundar og verk hlytu tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2019. Öræfahjörð Unnar Birnu Karlsdóttur var þar á meðal! Athöfnin sem var hátíðleg og nokkuð fjölmenn fór fram að Kjarvalsstöðum. Nú er tilnefnt í þremur flokkum; í flokki fræðirita og bóka almenns efnis, í flokki barna- og ungmennabóka […]
Sárasótt og skrælingjar – fjör á höfundakvöldi Sögufélags
nóvember 2019 Glatt var á hjalla og notaleg stemming í Gunnarshúsi á fjölmennu höfundakvöldi Sögufélags miðvikudagskvöldið 20. nóvember. Kynnir kvöldsins, Brynhildur Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri félagsins, reið á vaðið þegar hún sagði frá starfi félagsins á árinu, meðal annars í kynningar- og ímyndarmálum og greindi frá því að nýlega hefðu orðið til 102 (misalvarlegar) tillögur að nýju […]