Nýir þættir af Blöndu

Á síðustu vikum hafa komið út tveir nýir þættir af Blöndu — hlaðvarpi Sögufélags.

Í desember var rætt við Helga Þorláksson um nýútkomna bók hans Á sögustöðum. Helgi ræddi við Jón Kristinn Einarsson um söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, Guðmund góða Arason, samband Íslands við Danmörku og ýmislegt fleira.

Í síðustu viku kom svo út þáttur þar sem rætt var við Hjalta Snæ Ægisson um tvímála útgáfu á verkinu Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland eftir Jón Thorchillius. Jón Kristinn ræddi við Hjalta um upplýsinguna, bókmenntasögur í upphafi átjándu aldar, skólastarf á þeim tíma og ýmislegt fleira.