Landsnefndin fyrri – einstakt tilboð á öllu safninu

Í vefverslun Sögufélags er nú hægt að kaupa öll bindi Landsnefndarinnar fyrri 1770–1771 á sérstöku pakkatilboði. Fimmta bindið kom út í síðustu viku og munu kaupendur fá send fyrstu fimm bindin strax, en sjötta bindið verður sent til kaupenda um leið og það kemur út á næsta ári.

Heildarútgáfa á skjölum Landsnefndarinnar fyrri verður birt í sex bindum á árunum 2016–2021. Frumbréfin eru bæði á íslensku og dönsku eins og þau voru þegar þau voru send Landsnefndinni á sínum tíma. Flest íslensku bréfin voru þýdd á sínum tíma til notkunar fyrir nefndina af ritara hennar Eyjólfi Jónssyni. Íslensku bréfin sem bárust henni skömmu fyrir brottför af landinu voru þó aldrei þýdd, og er bætt úr því hér í tengslum við útgáfuna. Bókunum fylgja fræðilegar greinar, ítarlegar skýringar, nafna- og efnisorðaskrár. Allar greinar og skýringarefni er bæði á íslensku og dönsku.

Ritröðin á sér veglega vefsíðu, Landsnefndin.is