Höfundur
Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
Unavailable
ISBN
Unavailable
Blaðsíðufjöldi
286
Ritstjóri
Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
19.-21. öld, Félagssaga, Kvenna- og kynjasaga

Svo veistu að þú varst ekki hér: Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi

Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger

5.500kr.

Svo veistu að þú varst ekki hér: Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi er fyrsta íslenska fræðiritið á sviði hinsegin sögu. Að því leyti má segja að þetta sé tímamótaverk í íslenskri sagnfræði sem getur stuðlað að mótun og miðlun dýrmætrar þekkingar til gagns bæði fyrir hinsegin lesendur og samfélagið allt.

Bókin inniheldur sex ritrýndar greinar sem eru fjölbreyttar að efni. Í þeim er fjallað um hinsegin sagnfræði sem fræðilega nálgun á söguna, þýðingar og viðtökur á ljóðum Saffóar á Íslandi, málaferlin gegn Guðmundi Sigurjónssyni sem var dæmdur í fangelsi fyrir „kynvillu“ árið 1924, orðræðu um „listakynvillinga“ á Laugavegi 11 og samkynhneigð sem birtingarmynd hins illa á sjötta áratugnum, sögu og hlutverk bókasafns Samtakanna ´78 og ímynd Íslands sem hinsegin paradísar. Ritstjórar greinasafnsins eru Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger, en auk þeirra eiga greinar í bókinni Kristín Svava Tómasdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Þorvaldur Kristinsson.

Bókin var tilnefnd til Menningarverðlauna DV fyrir árið 2017.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.