Höfundur
Kristín Svava Tómasdóttir
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
Unavailable
ISBN
Unavailable
Blaðsíðufjöldi
342
Ritstjóri
Unavailable
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
19.-21. öld, Félagssaga, Kvenna- og kynjasaga, Menningarsaga

Stund klámsins: Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar

Kristín Svava Tómasdóttir

4.900kr.

Stund klámsins er fyrsta fræðilega verkið um sögu kláms á Íslandi og að því leyti tímamótaverk.

Á tímum kynlífsbyltingarinnar á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar jókst sýnileiki nektar og kynlífs í vestrænni menningu. Í kvikmyndum og sjónvarpi, bókum og blöðum, leikhúsi og ljósmyndum var kynlíf ekki aðeins gefið í skyn heldur var því lýst af sívaxandi nákvæmni. Víða um lönd velti fólk því fyrir sér hvernig skyldi skilgreina klám við þessar aðstæður. Hvernig var ásættanlegt eða æskilegt að sýna kynlíf – og hvernig ekki?

Stund klámsins fjallar um sögu kláms á Íslandi á árum kynlífsbyltingarinnar og alla þá ólíku aðila sem tóku þátt í að móta skilgreiningu þessa gamla hugtaks á nýjum tímum. Rýnt er í hugmyndir um klám sem andstæðu upplýsandi fræðslu og listrænnar tjáningar, um kynfrelsi og bælingu, ritskoðun og tjáningarfrelsi, ónáttúru og afbrigðilegar hneigðir. Við sögu kemur ýmislegt sem ekki hefur verið rætt í samhengi Íslandssögunnar hingað til – enda stranglega bannað börnum.

Kristín Svava Tómasdóttir er sagnfræðingur og ljóðskáld. Hún hefur áður sent frá sér ljóðabækur en þetta er fyrsta fræðibókin hennar.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.