Höfundur
Unavailable
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2019
ISBN
0256-8411
Blaðsíðufjöldi
276
Ritstjóri
Kristín Svava Tómasdóttir, Vilhelm Vilhelmsson
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Saga – Tímarit Sögufélags

Saga: Tímarit Sögufélags 2019 LVII: 2

Original price was: 4.400kr..Current price is: 2.200kr..

Tímaritið Saga kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi.

Þrjár ritrýndar greinar eru í heftinu: Sveinn Máni Jóhannesson skrifar um ríkisvísindi Jóns Sigurðssonar, Þorsteinn Vilhjálmsson fjallar um orðræðu um kynheilbrigði og kynsjúkdóma í Reykjavík á árunum 1886-1940 og Vilhelmína Jónsdóttir skrifar um fortíðleika í nýjum miðbæ á Selfossi.

Í „Álitamálum“ Sögu fjalla Salvör Nordal, Bragi Þorgrímur Ólafsson, Njörður Sigurðsson og Bára Baldursdóttir um sagnfræðinga og persónuvernd. Undir flokknum „Saga og miðlun“ ræðir Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir lækningaminjasafn Íslands 2007-2013. Í þættinum „Úr skjalaskápnum“ draga Sólbjörg Una Pálsdóttir og Linda Björk Valbjörnsdóttir fram heimildir um líkamsþroskun og mælingar barna í Skagafirði á fyrri hluta tuttugustu aldar.

Tvær viðhorfsgreinar eru í heftinu: Gunnar Karlsson ritaði svargrein við bók Axels Kristinssonar, Hnignun hvaða hnignun?, sem ber heitið „Sjálfsvörn gamla mannsins“ og Gunnar Sveinbjörn Óskarsson skrifar um friðun á laxi í tengslum við dómsmál í Kjós undir lok nítjándu aldar.

Auk þess er að finna í heftinu ellefu ritdóma um nýleg sagnfræðiverk og eina ritfregn. Kápuna prýðir málverk Ásgríms Jónssonar, Eyjafjallajökull, og skrifar Ásta Friðriksdóttir grein um menningu og listir í Múlakoti í Fljótshlíð í tengslum við hana.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.