Höfundur
Unnur Birna Karlsdóttir
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2019
ISBN
978-9935-466-21-1
Blaðsíðufjöldi
283
Ritstjóri
Kristín Svava Tómasdóttir
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
16.-18. öld, 19.-21. öld, Atvinnusaga, Sagnfræði

Öræfahjörðin: Saga hreindýra á Íslandi

Unnur Birna Karlsdóttir

Original price was: 7.400kr..Current price is: 3.700kr..

Þau reika um öræfi Austurlands, hornprúð, tignarleg og kvik á fæti, og horfin út í buskann í einni andrá hverjum sem vill koma nærri þeim. Hjá sumum vekja þau lotningu og aðdáun – hjá öðrum veiðihvöt. Hreindýrin á Íslandi hafa kveikt ólíkar tilfinningar í brjóstum landsmanna frá því þau voru fyrst flutt hingað til lands á seinni hluta 18. aldar.

Þeim var ætlað að verða Íslendingum lífsbjörg á erfiðum tímum. Það leið þó ekki á löngu þar til bændur fóru að amast við hreindýrunum og komust þá upp á lag með að veiða þau. Margir höfðu efasemdir um framtíð hreindýra á Íslandi og töldu réttast að veiða þau hvar og hvenær sem til þeirra næðist. Undir lok 19. aldar var aftur á móti farið að ljá máls á nauðsyn þess að friða þau og vernda fyrir útrýmingu. Á 20. öld skiptu stjórnvöld sér í vaxandi mæli af fjölgun, útbreiðslu og nýtingu hreindýrastofnsins á Íslandi – svo mjög að sumum þótti sem þau væru ekki lengur sannkölluð börn öræfanna heldur hreindýrahjörð ríkisins.

Í þessari viðamiklu bók er rakin saga hreindýra á Íslandi frá upphafi til okkar daga. Sagðar eru sögur af harðri lífsbaráttu á hreindýraslóðum, æsilegum veiðiferðum og misjöfnum tilraunum til hreindýrabúskapar. Ekki má gleyma hreindýrunum sem áður gengu í Þingeyjarsýslu, á Reykjanesskaga og í Fljótshlíð en eru nú horfin af sjónarsviðinu.

Unnur Birna Karlsdóttir (f. 1964) lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2010. Hún hefur sent frá sér ýmis fræðirit og fræðigreinar um samband manna og náttúru á Íslandi. Rannsóknin á sögu hreindýra á Íslandi er stærsta verk hennar á því sviði hingað til. Unnur Birna gegnir stöðu forstöðumanns Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Austurlandi.

Bókina prýðir mikill fjöldi ljósmynda.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.