4.900kr.
„Þetta var einstök upplifun. Fólki vöknaði um augu þegar það horfði á ríkisfána Íslands dreginn að hún á Stjórnarráðsbyggingunni í Reykjavík í fyrsta sinn klukkan tólf á hádegi sunnudaginn 1. desember 1918. Draumur þjóðarinnar um sjálfstæði hafði ræst.“
Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur rekur aðdragandann að þessu í lifandi myndskreyttri frásögn í bókinni Hinir útvöldu: Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918. Sagt er frá eftirminnilegum einstaklingum, hörðum átökum og þjóðlífi í skugga heimsstyrjaldar og áfalla hið viðburðaríka ár 1918. Var þessi fámenna þjóð í stakk búin til að reka sjálfstætt ríki?
Gunnar Þór hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir vönduð og einkar læsileg sögurit. Hann hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015 fyrir bókina Þegar siðmenningin fór fjandans til: Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918.
I ATBURÐIR
II ÞJÓÐIN
III SJÁLFSTÆÐI
fæddist á Ísafirði 1957. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, lauk BA-prófi frá í sagnfræði og þýsku frá Háskóla Íslands, MA-prófi í alþjóðasamskiptum frá sama skóla og stundaði framhaldsnám í sagnfræði í Þýskalandi. Hann kenndi í mörg ár við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og hefur lengi verið stundakennari við Háskóla Íslands.
Gunnar Þór hefur sinnt ýmsum félags- og útgáfustörfum innan sagnfræðinnar; var annar stofnenda Sagna, ritstýrði Nýrri sögu um hríð og sat í stjórn Félags sögukennara, var formaður Félags um átjándu aldar fræði í fjögur ár og sat í stjórn Sögufélags.
Gunnar Þór hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis árið 2015 fyrir bókina Þegar siðmenningin fór fjandans til. Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918.
Ritdómur Björns Bjarnasonar sem birtist fyrst í Morgunblaðinu:
https://www.bjorn.is/greinar/orlagaarid-1918-og-fullveldid
“Sagnfræðirit verða ekki öllu betur úr garði gerð.” – Ritdómur í Þjóðmálum:
https://www.thjodmal.is/2019/02/11/riki-medal-rikja-thjod-medal-thjoda/
Viðtal við Gunnar Þór í Morgunvaktinni á Rás 1
https://www.ruv.is/frett/island-vard-sjalfstaett-riki
http://arc.ci.x-cago.net/data/mbl/20181201/pages/01068/articles/MBL-20181201-01068002.pdf
Gunnar Þór með sögugöngu
https://www.fullveldi1918.is/is/dagskra-arsins/i-fotspor-hinna-utvoldu
Hinir útvöldu hlýtur önnur verðlaun úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar
Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.