Höfundur
Unavailable
Útgefandi
Þjóðskjalasafn Íslands og Sögufélag
Útgáfuár
2024
ISBN
978-9979-876-14-4
Blaðsíðufjöldi
680
Ritstjóri
Gísli Baldur Róbertsson, Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Unavailable

Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl IV. bindi 1733–1741

9.900kr.

Í þessu fjórða bindi útgáfu dóma og skjala yfirréttarins birtast dómar áranna 1733–1741. Málin sem komu fyrir réttinn voru að venju af ýmsum toga en undirliggjandi í mörgum þeirra eru ásakanir um afglöp eða yfirgang sýslumanna í starfi. Í sumum tilfellum lá áralöng óvild að baki málaferlunum en stundum reið ógæfan yfir fyrirvaralaust, líkt og í manndrápsmáli Ásmundar Þórðarsonar úr Skagafjarðarsýslu. Stjúpfaðir og stjúpdóttir voru sótt til saka fyrir barneignarbrot í Dalasýslu, virtur maður í Húnavatnssýslu hafðist sumarlangt við í skemmu eftir að hafa verið meinað um ábúð á eignarjörð sinni og annar ungur maður í sömu sýslu var gerður arflaus fyrir leti. Áfrýjunarferli margra þessara dómsmála til Yfirréttarins var óhefðbundin og starfssemi réttarins tók ýmsum breytingum á þessum árum. Alþingi styrkti útgáfuna.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.