4.900kr.
Stund klámsins er fyrsta fræðilega verkið um sögu kláms á Íslandi og að því leyti tímamótaverk.
Á tímum kynlífsbyltingarinnar á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar jókst sýnileiki nektar og kynlífs í vestrænni menningu. Í kvikmyndum og sjónvarpi, bókum og blöðum, leikhúsi og ljósmyndum var kynlíf ekki aðeins gefið í skyn heldur var því lýst af sívaxandi nákvæmni. Víða um lönd velti fólk því fyrir sér hvernig skyldi skilgreina klám við þessar aðstæður. Hvernig var ásættanlegt eða æskilegt að sýna kynlíf – og hvernig ekki?
Stund klámsins fjallar um sögu kláms á Íslandi á árum kynlífsbyltingarinnar og alla þá ólíku aðila sem tóku þátt í að móta skilgreiningu þessa gamla hugtaks á nýjum tímum. Rýnt er í hugmyndir um klám sem andstæðu upplýsandi fræðslu og listrænnar tjáningar, um kynfrelsi og bælingu, ritskoðun og tjáningarfrelsi, ónáttúru og afbrigðilegar hneigðir. Við sögu kemur ýmislegt sem ekki hefur verið rætt í samhengi Íslandssögunnar hingað til – enda stranglega bannað börnum.
Kristín Svava Tómasdóttir er sagnfræðingur og ljóðskáld. Hún hefur áður sent frá sér ljóðabækur en þetta er fyrsta fræðibókin hennar.

Kristín Svava Tómasdóttir (f. 1985) er sagnfræðingur (MA) frá Háskóla Íslands. Hún hefur gefið út þrjár ljóðabækur en Stund klámsins er hennar fyrsta fræðibók. Hún er jafnframt einn tveggja ritstjóra Sögu – tímarits Sögufélags.
Stund klámsins hlýtur viðurkenningu Hagþenkis:
“Verðlaunabók um hið fordæmda klám”, umfjöllun í Fréttablaðinu
Umfjöllun um Stund klámsins í Kiljunni
“Vorleikur”, ritdómur eftir Einar Má Jónsson í Tímariti Máls og menningar
“Mjög læsileg og hæfilega fræðileg bók”, umfjöllun í Kiljunni
“Úr Stund klámsins: Feimnismálin, hvaða erindi eiga þau inn í bókmenntirnar?”, Starafugl
Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.