1.500kr.
Að tilhlutan forsætisráðuneytisins var ákveðið árið 1999, í tilefni af 100 ára afmæli Stjórnarráðs Íslands árið 2004, að láta rita framhald á sögu þess, en árið 1969 kom út í tveimur bindum Stjórnarráð Íslands 1904-1964 eftir Agnar Kl. Jónsson.
Í þriðja bindi er fjallað um sögu ríkisstjórna á tímabilinu frá 1984-2004 og helstu framkvæmdir þeirra. Höfundar þriðja bindis eru Sigríður Þorgrímsdóttir og Jakob F. Ásgeirsson og fjalla þau um stjórnmálaþróun, stjórnarmyndanir og ríkisstjórnir á tímabilinu, um samskipti innan ríkisstjórna, og ræða um helstu viðfangsefni þeirra. Í lok þriðja bindis er skrá um ráðherra í Stjórnarráði Íslands 1964-2004, ráðuneytisstjóra og aðstoðarmenn ráðherra. Í ritunum eru mörg hundruð mynda sem margar hverjar hafa ekki birst áður.

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.