Höfundur
Unavailable
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2024
ISBN
0256-8411
Blaðsíðufjöldi
208
Ritstjóri
Kristín Svava Tómasdóttir og Vilhelm Vilhelmsson
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Unavailable

Saga: Tímarit Sögufélags 2024 LXII: II

5.800kr.

Myndin sem prýðir forsíðu Sögu er „nokkuð áreiðanlega elsta ljósmynd sem tekin hefur verið á Íslandi“ að sögn höfundar forsíðumyndargreinarinnar, Guðmundar J. Guðmundssonar, um þessa sögulegu mynd.

Þrjár ritrýndar greinar eru í heftinu. Hrafnkell Lárusson rýnir í þá sögu skoðun að íslensk alþýða um aldamótin 1900 hafi staðið sameinuð að baki stjórnmálamönnunum sem leiddu baráttuna fyrir sjálfstæði landsins.

Hafdís Erla Hafsteinsdóttir skrifar um systkinin Steinunni Thorsteinsson og Harald Hamar í ljósi hinsegin sögu. Þau voru bæði þekkt nöfn í menningarlífi Reykjavíkur á sínum tíma en þeirra er minnst þeirra með gjörólíkum hætti.

Árni Daníel Júlíusson skrifar um hjáleigubyggð á miðöldum, umfang hennar og útbreiðslu þar sem drengur fram fyllri mynd af umfangi byggðar á Íslandi fyrir siðaskipti.

Álitamál Sögu eru helguð söguritun um pólitískt andóf og grasrótarhreyfingar á Íslandi og varðveislu heimilda um þá sögu. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri Kvennasögusafns Íslands, Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, og sagnfræðingarnir Stefán Pálsson og Pontus Järvstad skrifa pistla um efnið.

Í heftinum er þáttur um skemmtilegt skjal og þar skrifar Sigríði Jónsdóttur grein um vinnuhandrit Helga Skúlasonar leikstjóra fyrir uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Stólunum eftir Eugène Ionesco árið 1961 og vekur athygli lesenda á þeim fjársjóði heimilda sem leynist innan Leikminjasafnsins.

Í heftinu er einnig hægt að finna viðhorfsgrein eftir Guðmund J. Guðmundsson um embættismannafundinn 1839.

Jafnframt eru í heftinu sjö ritdómar um nýleg sagnfræðiverk.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.