Höfundur
Unavailable
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2022
ISBN
0256-8411
Blaðsíðufjöldi
261
Ritstjóri
Kristín Svava Tómasdóttir og Vilhelm Vilhelmsson
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Unavailable

Saga: Tímarit Sögufélags 2022 LX:2

4.500kr.

 

 

Anna Dröfn Ágústsdóttir skrifar forsíðumyndargrein sem kemur úr safni Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara og sýnir fundarmenn á landsfundi Sjálfstæðisflokksins haustið 1951.
Íslenska Söguþingið var haldið í fimmta sinn vorið 2022 og þar fóru fram pallborðsumræður um tímaritið Sögu og útgáfu fræðitímarita á tuttugustu og fyrstu öld. Framsögur frummælendanna þriggja, Guðmundar Hálfdanarsonar, Írisar Ellenberger og Viðars Pálssonar, birtast sem álitamál Sögu að þessu sinni ásamt tveimur öðrum pistlum sem varða efnið: Auður Magnúsdóttir flytur fréttir af sambærilegum pallborðsumræðum sem fóru fram á norræna sagnfræðingaþinginu í Gautaborg í ágúst 2022 og Brynhildur Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Sögufélags, skrifar um stöðu og hlutverk félagsins, útgefanda Sögu.
Gunnar Tómas Kristófersson skrifar viðhorfsgrein um fyrstu leiknu kvikmyndina sem leikstýrt var af íslenskri konu, Ágirnd eftir Svölu Hannesdóttur frá 1952.
Önnur viðhorfsgrein er eftir Ásgeir Jónsson en hann svarar grein Bergsveins Birgissonar í síðasta hefti þar sem hann gagnrýndi meðferð heimilda í bók Ásgeirs, Eyjan hans Ingólfs.
Þrjár doktorsvarnir í sagnfræði fóru fram við Háskóla Íslands fyrri hluta árs 2022 og þar af birtast tvenn andmæli í þessu hefti, frá doktorsvörn Braga Þorgríms Ólafssonar í febrúar og doktorsvörn Sólveigar Ólafsdóttur í júní.
Að lokum birtast í heftinu 14 ritdómar um nýleg verk á sviði íslenskrar sögu.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.