Forsíðumyndin á Sögu er að þessu sinni af bjöllunni í Helgafellskirkju og fjalla þær Steinunn Kristjánsdóttir og Vala Gunnarsdóttir um hana
Álitamálin eru Sagan og samtíminn: Flóttamenn og fólksflutningar og fjalla þau Sverrir Jakobsson, Íris Ellenberger, Guðmundur Hálfdanarson og Hallfríður Þórarinsdóttir um þau.
Að venju eru birt ritdómar og ritfregnir í Sögu.
Saga – Tímarit Sögufélags 2017 LV: 1
/
4.400kr.
Greinar:
- Kristrún Halla Helgadóttir: „Manntalið 1729 og fyrirætlanir um flutninga fólks til Grænlands“
- Þorgerður H. Þorvaldsdóttir: „„Því miður eruð þér ekki á kjörskrá“: Samtvinnun sem greiningartæki í sagnfræði.“
- Unnur Birna Karlsdóttir: „Gjöf skáldsins og húsnæðisvandi Minjasafns Austurlands.“
- Gunnar Sveinbjörn Óskarsson: „Torfbær á tímamótum.“