Höfundur
Björk Ingimundardóttir
Útgefandi
Þjóðskjalasafn Íslands, söluumboð Sögufélag
Útgáfuár
2019
ISBN
9789979876335
Blaðsíðufjöldi
588
Ritstjóri
Unavailable
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Félagssaga, Heimildaútgáfa, Menningarsaga, Sagnfræði, Trúarbrögð

Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi I-II

Björk Ingimundardóttir

Original price was: 9.900kr..Current price is: 4.950kr..

Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I‒II eftir Björk Ingimundardóttur er grundvallarrit um félagsgerð og samfélag fyrri alda. Í tíu aldir hefur kirkjan sinnt mikilvægu hlutverki í lífi landsmanna. Saga hennar er frá kristnitöku samofin sögu þjóðarinnar – tíundarkerfið tengdist prestum og kirkjunni og fæðingar, skírnir, giftingar, andlát, veikindi og heimilisfesta voru skráð í bækur kirkjunnar.

Skjalasöfn kirkna og biskupsstóla, sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni, eru um 360 hillumetrar og ná frá tólftu öld til samtímans. Á árunum 1985‒1990 endurskráði Björk Ingimundardóttir skjalavörður skjalasöfn presta og prófasta og vann jafnframt að rannsóknum á söfnunum. Markmiðið var ekki síst að benda á fjölþætta möguleika til þess að nýta skjalasöfn kirkjunnar í heild, rannsaka þau og vekja athygli á skjölunum sem grundvallarheimild um fjölmörg svið samfélagsins. Auk skjalaskrárinnar sjálfrar var verkefnið rannsókn á því hvar mörk sókna, prestakalla og prófastsdæma lágu og hvernig þau hafa breyst í aldanna rás. Sú rannsókn birtist hér í tveimur bindum.

Björk Ingimundardóttir fæddist árið 1943 á Hæli í Flókadal og er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún starfaði á Þjóðskjalasafni 1971­‒­2013 og hefur komið að útgáfu fjölda bóka, þar má nefna fyrsta bindi Yfirréttarins á ÍslandiSkjalasafn landfógeta 1695­1904 og Byggðir Borgarfjarðar. Árið 2011 var Björk gerð að heiðursfélaga í Sagnfræðingafélagi Íslands.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.