4.900kr.
Sumarólympíuleikarnir í London árið 1948 voru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Vegna seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu ekki verið haldnir Ólympíuleikar í 12 ár, en aðstæður í London voru erfiðar svona stuttu eftir stríð og stundum er talað um „meinlætaleikana“ af þeim sökum. Þetta voru líka fyrstu sumarleikarnir sem Ísland keppti á eftir lýðveldisstofnun og Íslendingar höfðu metnað til að standa sig vel. Ísland sendi því stóran flokk á leikana og íslenskar konur þreyttu frumraun sína á Ólympíuleikum.
Undirbúningur Íslendinga gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Íslendingar glímdu við gjaldeyrisskort, í Bretlandi var matur af skornum skammti og ólympíuflokkurinn tók því um 100 kíló af íslenskum mat með í nesti. Að mörgu þurfti að huga, bæði varðandi þjálfun og aðstöðu keppenda, mikill hiti og erfiðar aðstæður í London settu strik í reikninginn og árangur Íslendinganna olli vonbrigðum.
Hér er farið yfir áhugaverðan tíma í íslenskri íþróttasögu í alþjóðlegu samhengi. Margir frægir Íslendingar koma við sögu, eins og til dæmis Gunnar Huseby, kúluvarpari, sem fór ekki á leikana og Jón Leifs, tónskáld, sem keppti í listasamkeppni Ólympíuleikanna. Með harðfisk og hangikjöt að heiman fjallar um undirbúning og þátttöku Íslendinga á þessum sögulegu Ólympíuleikum út frá kenningum um þjóðarstolt og ríkiserindrekstur.
Stórhuga Íslendingar
Þátttaka Íslands á Ólympíuleikum fram til ársins 1948
Þjóðarstolt og menningarleg þjóðernisrækt
London að loknu stríði
Ólympíunefnd skipuð
Aðstöðuleysi til æfinga
Keppendur valdir – enginn Gunnar Huseby.
Baldr eftir Jón Leifs á Ólympíuleikum
Fjármögnun ólympíufararinnar
Samskipti við viðskiptanefnd
Ferðalagið til London
Áhorfendur og fylgdarlið
aðstöðuleysi
Með rúmlega 100 kíló af íslenskum mat í farteskinu
Íþróttaárangur Íslendinga
Fjölmennur fjölmiðlaflokkur
Að leikum loknum
Arfleifð leikanna fyrir íslenska íþróttasögu
Abstract
Árangur Íslendinga á leikunum í London árið 1948
Fólkið sem kemur við sögu í bókinni
Eftirmáli
Tilvísanir
Heimildaskrá
Nafnaskrá
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú meistaranám í sagnfræði við sama skóla með áherslu á íþróttasögu.
Þorkell hefur starfað sem íþróttafréttamaður hjá RÚV frá árinu 2009 og verið viðstaddur ferna Sumarólympíuleika. Auk þess hefur hann unnið fjölda sjónvarps- og útvarpsþátta um íþróttir í sögulegu samhengi.
Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.