3.900kr.
Árið 1807, í Napóleonsstyrjöldunum, gerðu Bretar stórskotaárás á Kaupmannahöfn og gengu Danir þá í lið með Frökkum. Breski flotinn var allsráðandi í norðurhöfum og hertók flest Íslandsskip. Mangús Stephensen var á einu þessara skipa og í þremur dagbókarbrotum frá 1807-1908 lýsir hann ferð sinni, hertökunni, dvöl sinni í Leith og Kaupmannahöfn og tilraunum síum til að koma landsmönnum til hjálpar. Hann gaf jafnframt út Eftirmæli átjándu aldar á dönsku, skrifaði fræðigreinar, nam ensku og sótti tónleika og veislur hjá fyrirmönnum.

Napóleonsstyrjaldirnar eru alltaf í bakgrunninum, Kristján VII deyr og Friðrik VI tekur við ríkjum. Loks segir hann frá dvöl sinni í Björgvin þar sem hann leitaðist við að semja við norska kaupmenn um Íslandssiglingu. Einnig er hér birt ferðadagbók hans frá haustinu 1799.
“Dagbækur frá Örlagatímum”, ritdómur Helga Skúla Kjartanssonar.
Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.