Þetta er bókin um það, hvernig Reykjavík breyttist úr dönskum kaupstað í íslenzkan bæ. Hér greinir m.a. frá mótun fyrstu bæjarstjórnar í Reykjavík. Allar kjörskrár Reykjavíkur á tímabilinu eru birtar og kosningaúrslit, einnig allar fjárhagsáætlanir og fundargerðir bæjarstjórnar. Hér er m.a. að finna umræður bæjarstjórnar um brunavarnir, hafnarbætur, gatnagerð og vatnsból. Þetta er hið traustasta heimildarrit um sögu Reykjavíkur og prýði hvers bókaskáps á reykvísku heimili.
Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.