#7 Hausthefti Sögu 2020

Markús Þórhallson
#7 Hausthefti Sögu 2020

Í sjöunda þætti fáum við til okkar Kristínu Svövu Tómasdóttur, annan ristjóra Sögu. Hún ræðir við okkur um splunkunýja Sögu - haustheftið 2020, auk þess sem spjallað er um tímaritið í fortíð og framtíð.

Í haustheftinu 2020 eru þrjár ritrýndar greinar. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir skrifar um landnám kynjasögunnar á Íslandi á þessari öld, Hjalti Hugason fjallar um heimagrafreiti á Íslandi á nítjándu og tuttugustu öld og Brynja Björnsdóttir skrifar um réttarstöðu kvenna vegna heimilisofbeldis hér á landi frá 1800 til 1940.

Í flokknum Saga og miðlun skrifar Súsanna Margrét Gestsdóttir um tækifæri og aðferðir í sögukennslu á tölvuöld. Við birtum jafnframt stutt viðtal við Sverri Jakobsson, formann þingstjórnar fimmta íslenska söguþingsins sem haldið verður í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð dagana 27.–29. maí 2021.

Kristjana Vigdís Ingvadóttir á Þjóðskjalasafni Íslands skrifar grein fyrir þáttinn Úr skjalaskápnum og fjallar um skjöl sem varða fjársöfnun Íslendinga handa Dönum í kjölfar fyrra Slésvíkurstríðsins um miðja nítjándu öld.

Guðmundur Jónsson skrifar grein til minningar um Gísla Gunnarsson, prófessor emeritus í sagnfræði, sem lést í apríl.

Loks eru birtir sjö ritdómar og ein ritfregn um nýleg verk á sviði sagnfræði.

Eldri hlaðvörp

#29 Guðni Th. Jóhannesson um Stund milli stríða

Markús Þ. Þórhallsson

#28 Ísland var ekki barbaraland

Jón Kristinn Einarsson

#27 Helgi Þorláksson um Sögustaði

Jón Kristinn Einarsson

#26 Kristín Svava Tómasdóttir um Farsótt

Einar Kári Jóhannsson

#25 Hafdís Erla Hafsteinsdóttir um Mennina með bleika þríhyrninginn

Einar Kári Jóhannsson

#24 Jón Kristinn Einarsson um Jón Steingrímsson og Skaftárelda

Einar Kári Jóhannsson