Blanda fjallar að þessu sinni um Norræna sagnfræðiþingið sem ber yfirskriftina Mörk (grænser/borders). Það eru þær Ása Ester Sigurðardóttir og Valgerður Pálmadóttir úr skipulagsnefnd Norræna sagnfræðingaþingsins 2025 sem ræða saman um dagskrána og mikilvægi þingsins fyrir íslenska sagnfræði.
Sagnfærðiþingið verður haldið í Háskó´la Íslands og er dagskráin bæði gríðarlega fjölbreytt og spennandi. Meðal efna sem fjallað verður um eru: Samskipti manna og dýra, umhverfissaga, stríð og friður, menning og stjórnmál miðalda, kalda stríðið í nýju ljósi, söguskoðun, minni og stjórnmál, áskoranir í sögukennslu og norræn einsöguhefð.