Blanda er að þessu sinni helguð sögu íslenskrar kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á árunum 1918–1968.
Ævar Kjartansson ræðir við höfundinn, Skafta Ingimarsson, um bók hans, Nú blakta rauðir fánar, m.a. hvers vegna kommúnistahreyfingin á Íslandi var jafn öflug og raun ber vitni einnig um valdabaráttuna innan hreyfingarinnar og togstreituna milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hennar.