#43 Eggert Ágúst Sverrisson og Drottningin í Dalnum

Markús Þórhallsson
Eggert Sverrisson - jpg mynd við skrifborð nær

Markús Þórhallsson ræðir við Eggert Ágúst Sverrisson um nýútkomna bók hans Drottningin í Dalnum. Þetta er fyrsta bók Eggerts á þessum vettvangi. Hann lauk námi í viðskiptafræðum 1974 og starfaði að mestu við fjármál og vátryggingar á starfsferli sínum. Þegar hann lét af störfum fór hann í nám í sagnfræði og lauk BA námi 2019. Þá hóf hann að skrifa þessa einstöku bók sem er gott heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld.

Þar sem megin stef bókarinnar er samfélagslýsing árin 1800 til 1940 ræða þeir Markús og Eggert Ágúst nokkuð hinar ýmsu hliðar samfélagsgerðarinnar á 19. öld s.s. híbýli fólks, fátækraframfærslu, vinnufólk og stöðu jarðeigenda og leiguliða og samskipti þeirra í gegnum aldirnar. Sérstaklega er áhugavert mat Eggerts á leigu jarða um miðja 19. öld og samanburður við leigukjör nútímans. Þeir ræða þjóðfélags breytingarnar frá sveitasamfélaginu í þéttbýlissamfélagið sem jafna má við byltingu. Markús og Eggert ræða töluvert efnahagsþróun tímabilsins en þar nýtir Eggert hagfærði- og sagnfræðiþekkingu sína m.a. með því að greina 140 ára tímaskeið í 11 hagþróunar tímabil þar sem farið er mjög ítarlega í gegnum efnahagsstarfsemi hvers tímabils.

Eldri hlaðvörp

#42 Guðmundur Jónsson og Ástand Íslands um 1700

Jón Kristinn Einarsson

#41 Hrafnkell Lárusson og Lýðræði í mótun

Jón Kristinn Einarsson

#40 Þorkell Gunnar og Ólympíuleikarnir 1948

Ása Ester Sigurðardóttir

#39 Kobeinn Rastrick um 30. marz 1949

Katrín Lilja Jónsdóttir

#38 Haraldur Sigurðsson um Samfélag eftir máli

Einar Kári Jóhannsson

#37 Kristín Loftsdóttir um Andlit til sýnis

Katrín Lilja Jónsdóttir