8.900kr.
Klaustrin voru öflugustu stofnanir kaþólsku kirkjunnar á Íslandi á miðöldum, næst á eftir biskupsstólunum. Saga þeirra, sem spannar nær 500 ár, einkennist af auðsöfnun og aga í bland við bóklega menntun, handverk, stjórnsýslu, hjúkrun, lækningar og útbreiðslu trúar á Guð alvaldan og helga menn og konur. Hún er líka saga síendurtekinna skírlífisbrota og barneigna, farsótta og dauða, eldsvoða og vopnaðra átaka.
Alls voru 14 klaustur stofnuð á Íslandi á kaþólskum tíma, hið fyrsta árið 1030 og hið síðasta 1493. Klausturhaldið nær þannig yfir ólík tímaskeið, allt frá bjartsýnisárum til falls kaþólsku kirkjunnar með innleiðingu lúterskunnar við siðaskiptin 1550.
Eftir siðaskiptin urðu eigur klaustranna ein helsta stoðin í veldi Danakonungs en kaþólsk trú var bönnuð til ársins 1874. Klausturhús voru rifin, rústir sukku í jörð og gripir glötuðust. Jafnframt týndist vitneskjan um klaustrin og klausturhald í landinu.
Eins og titillinn gefur til kynna er leit að klaustrunum hér í forgrunni og byggir bókin á margra ára rannsóknum höfundar. Steinunn Kristjánsdóttir bregður á persónlegan hátt ljósi á sögu klausturhalds í landinu og löngu horfinn heimur þeirra opnast fyrir lesendum.
Leitin að klaustrunum hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana árið 2017, Viðurkenningu Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, og Menningarverðlauna DV fyrir árið 2017. Auk þess var hún tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna.
Bókina má skoða sem nokkurs konar sjálfstætt framhald af Sögunni um Skriðuklaustur eftir Steinunni sem Sögufélag gaf út árið 2012.
Steinunn er prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands.
Við upphaf leitar
Klausturhald í íslenskri miðaldasögu
Klausturhald í meira en fimm alder
ÍSLENSKT KLAUSTRATAL
I Tilraunir til klausturlifnaðar
Bæjarklaustur í Borgarfirði (1030-1049)
Einsetulifnaður (900-1295)
II Rómarkirkja hreiðrar um sig á Íslandi
Þingeyraklaustur í Húnaþingi (1133-1551)
Munkaþverárklaustur í Eyjafirði (1155-1551)
Hítardalsklaustur á Mýrum (1166-1201/1237)
Þykkvabæjarklaustur í Álftaveri (1168-1548)
Flateyjarklaustur á Breiðafirði (1172-1184)
Helgafellsklaustur í Helgafellssveit (1184-1543)
Kirkjubæjarklaustur á Síðu
III Einkaklaustur andstæð kirkjuvaldinu
Keldnaklaustur á Rangárvöllum (1193-1222)
Saurbæjarklaustur í Eyjafirði (1200-1224)
Viðeyjarklaustur á Sundum (1226-1539)
IV Ný sókn eftir sigur í staðamálum
Reynistaðaklaustur í Skagafirði (1295-1551)
Möðruvallaklaustur í Hörgárdal (1296-1551)
V Hátindur og fall Rómarkirkju
Skriðuklaustur í Fljótsdal
Við lok leitar
Steinunn Kristjánsdóttir er prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands. Árið 2012 gaf Sögufélag út bók hennar um Skriðuklaustur í Fljótsdal. Bókin hlaut Fjöruverðlaunin fyrir bækur í flokki fræðirita og var tilnefnd til Viðurkennningar Hagþenkis og Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
„Steinunn hefur með þessu aukið þekkingu okkar á kirkjusögu þjóðarinnar” – ritdómur Hjalta Hugasonar um Leitina að klaustrunum.
https://ojs.hi.is/ritrodgudfraedistofnunar/article/view/2681/1442
Viðtal við Steinunni Kristjánsdóttur í Kiljunni
https://www.youtube.com/watch?v=_d5Jbyvs9NU
Rökstuðningur viðurkenningarráðs Hagþenkis
Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.