Aðalfundur Sögufélags 2024

Aðalfundur Sögufélags 2024 verður haldinn þriðjudaginn 12. mars kl. 18 í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8.

Dagskrá

1. Skýrsla stjórnar
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar
3. Kjör stjórnar og annarra trúnaðarmanna
4. Önnur mál

Framboð til stjórnar skulu berast skrifstofu félagsins með sjö daga fyrirvara. Forseti skal kjörinn sérstaklega til tveggja ára í senn og má endurkjósa hann fjórum sinnum. Aðrir stjórnarmenn skulu kjörnir til eins árs í senn og mega þeir eigi sitja lengur en sex ár samfellt í stjórn.

Í framhaldi af aðalfundinum, kl. 19:30, verður höfundaspjall. Haraldur Sigurðsson höfundur Samfélag eftir máli. Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi ræðir bók sína og svarar spurningum.