Kristín Loftsdóttir skrifar undir útgáfusamning við Sögufélag

Sögufélag hefur samið við Kristínu Loftsdóttur um útgáfu bókar sem ber vinnuheitið „Andlit til sýnis: Íslendingar og aðrir á Kanarísafninu“.

Umfjöllunarefnið eru brjóstmyndir á safni á Kanaríeyjum, meðal annars af Íslendingum. Áherslan á brjóstmyndirnar er stökkpallur inn í umræðu um kynþáttafordóma og nýlenduhyggju, og beinir jafnframt sjónum að samtengdum heimi sem Ísland og Evrópa hafa verið hluti af öldum saman. Líf valdra einstaklinga í brjóstmyndasafninu frá ólíkum heimshornum eru rakin og sýnt hvernig sögur þeirra eru samofnar.

Kristín Loftsdóttir er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands og hefur getið sér gott orð fyrir rannsóknir á fordómum, hvítleika-hugmyndum og nýlenduhyggju, svo fátt eitt sé nefnt.