Handa á milli. Heimilisiðnaðarfélag Íslands 1913–2013

Út er komin bókin Handa á milli. Heimilisiðnaðarfélag Íslands 1913–2013 eftir Áslaugu Sverrisdóttir.

Í henni er sögð 100 ára saga Heimilisiðnaðarfélagsins, frá stofnun til ársins 2013. Sögulegum bakgrunni félagsins eru gerð skil, sem og tengslum við heimilisiðnaðarhreyfingar í nágrannalöndunum. Rýnt er í það hvernig heimilisiðnaður á Íslandi hefur þróast í takt við samfélagsbreytingar, en á sama tíma er sagt frá fjölbreyttu starfi félagsins svo sem námskeiðum, alþjóðlegu samstarfi, útgáfustarfsemi og verslunarrekstri.

Útgáfu bókarinnar var fagnað með streymisviðburði á Árbæjarsafni í síðustu viku. Upptöku af honum má nálgast hér

Handa á milli, sem er hönnuð af Helgu Gerði Magnúsdóttur, er ríkulega myndskreytt og í sérlega fallegu, útsaumuðu bandi. Bókin er gefin út í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.