Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda (FÍBÚT) opnar á Laugardalsvelli í dag.
Sögufélag, líkt og undanfarin ár, er með bás á markaðnum þar sem hægt er að kaupa bækur félagsins á kostakjörum. Meðal þess sem er í boði eru Smárit Sögufélags, Hinir útvöldu eftir Gunnar Þór Bjarnason, verðlaunabókin Stund klámsins eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur og margt fleira. Allt á gjafaverði.
Bókamarkaðurinn er opinn frá kl. 10-21 alla daga og stendur yfir dagana 27. febrúar til 15. mars.