Tveir nýir þættir á Blöndu — hlaðvarpi Sögufélags

Fyrri þátturinn er helgaður sögu íslenskrar kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á árunum 1918–1968. Þar ræðir Ævar Kjartansson við höfundinn, Skafta Ingimarsson, um bók hans, Nú blakta rauðir fánar, m.a. hvers vegna kommúnistahreyfingin á Íslandi var jafn öflug og raun ber vitni einnig um valdabaráttuna innan hreyfingarinnar og togstreituna milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hennar.

Nýjasti þátturinn fjallar að um Norræna sagnfræðiþingið sem haldið verður 13. – 15. ágúst nk. sem ber yfirskriftina Mörk (grænser/borders). Það eru þær Ása Ester Sigurðardóttir og Valgerður Pálmadóttir úr skipulagsnefnd Norræna sagnfræðingaþingsins 2025 sem ræða saman um dagskrána og mikilvægi þingsins fyrir íslenska sagnfræði.