Höfundur
Unavailable
Útgefandi
Sögufélag, Þjóðskjalasafn Íslands og Ríkisskjalasafn Danmerkur
Útgáfuár
2018
ISBN
978-9979-876-28-1
Blaðsíðufjöldi
796
Ritstjóri
Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Innbundin harðspjaldabók

Landsnefndin fyrri / Den islandske landkommission 1770-1771 III

8.900kr.

Félagaverð 7.120 kr.

„Aldrei getur nokkur verið hamingjusamari en við sem búum við hina dönsku einveldisstjórn sem þekkt er um víða veröld fyrir mildi og föðurlegt hjartalag.“ Þannig komst Magnús Ketilsson sýslumaður að orði í greinargerð um viðreisn Íslands sem sjá má í nýútkomnu bindi af Landsnefndinni fyrri 1770-1771.

Landsnefndin fyrri var þriggja manna nefnd á vegum konungs sem ferðaðist um Ísland á árunum 1770-1771 og safnaði upplýsingum um land, þjóð og aðstæður í samfélaginu. Embættismenn landsins fengu sértækar spurningar frá nefndinni um allar hliðar samfélagsins á Íslandi, svo sem um fólksfjölda, kirkju, heilbrigðismál, verslun, handverk, landbúnað, sjávarútveg, samgöngur og margt fleira. En almenningur var hvattur til að senda nefndinni sína sýn á landsins gagn og nauðsynjar að ógleymdum eigin aðstæðum.

Í skjalasafni Landsnefndarinnar eru því bréf frá almenningi, prestum, sýslumönnum og öðrum embættismönnum, auk greinargerða og margvíslegra gagna frá nefndarmönnum sjálfum. Landsnefndarskjölin gefa einstæða innsýn í hugarfar, venjur og siði almennings og embættismanna, auk afstöðu danskra stjórnvalda til þeirra fjölmörgu mála sem Íslendingar gerðu að umtalsefni í lok 18. aldar.

Þjóðskjalasafn Íslands gefur skjöl Landsnefndarinnar fyrri út í samstarfi við Ríkisskjalasafn Danmerkur og Sögufélag. Útgáfan hófst árið 2016 og verða bækurnar sex talsins, með uppskriftum skjala og fræðilegum greinum, auk vefbirtingar ljósmynda af frumskjölunum og uppskrifta á þeim.

Í þriðja bindinu eru birt 36 bréf til Landsnefndarinnar fyrri frá embættismönnum landsins.

Ritröðin á sér veglega vefsíðu, Landsnefndin.is

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.