Höfundur
Sturla Þórðarson
Útgefandi
Hið íslenzka þjóðvinafélag, Sögufélag sér um dreifingu
Útgáfuár
Unavailable
ISBN
9979848111
Blaðsíðufjöldi
311
Ritstjóri
Unavailable
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Miðaldir, Uncategorized

Íslendinga saga Sturlu Þórðarsonar

Sturla Þórðarson

3.900kr.

Hið íslenska Þjóðvinafélag gaf út þessa myndskreytta útgáfu af meginþætti Sturlungusafnsins, þ.e. Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar. Þessi bók kom fyrst út í eins konar hátíðarútgáfu á þjóðhátíðarárinu 1974 með þeim hætti, að dr. Finnbogi Guðmundsson valdi um eitt hundrað viðburði úr Íslendingasögu Sturlu og fól tveimur listamönnum, Eiríki Smith og Þorbjörgu Höskuldsdóttur, að færa þessa viðburði í búning myndlistar. Hér fer því saman hinn stórbrotni texti sagnaritarans Sturlu og sýn listamannanna á eitt viðburðaríkasta tímaskeið Íslandssögunnar, Sturlungaöld.

Sturla Þórðarson (1214-1284) sagnaritari, lögsögumaður og síðast lögmaður, var bróðursonur Snorra Sturlusonar og kemur sjálfur við mörg helstu deilumál Sturlungaaldar. Íslendingasaga hans er frásögn um menn og málefni þrettándu aldar, einkum stjórnmálaátök. Fjallar hún um samtíð höfundarins sem hann lýsir listilega og færir í stílinn með aðferðum sem einkenna oft Íslendingasögur, en er hér beitt á raunverulega atburði. Sumar lýsingar minna á fréttaviðtöl nútímans en atburðarásin er hröð líkt í spennusögu.

Umsjónarmaður nýju útgáfunnar eins hinnar fyrri er dr. Finnbogi Guðmundsson. Hann hafði til viðmiðunar texta þann sem prentaður var í Sturlunguútgáfunni frá 1946, en aðalumsjónarmaður þeirra útgáfu var dr. Jón Jóhannesson.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.