Höfundur
Unavailable
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2021
ISBN
0256-8411
Blaðsíðufjöldi
Unavailable
Ritstjóri
Kristín Svava Tómasdóttir og Vilhelm Vilhelmsson
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
Unavailable

Saga: Tímarit Sögufélags 2020 LVIII:2

4.400kr.

Tímaritið Saga kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi.

Í haustheftinu 2020 eru þrjár ritrýndar greinar. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir skrifar um landnám kynjasögunnar á Íslandi á þessari öld, Hjalti Hugason fjallar um heimagrafreiti á Íslandi á nítjándu og tuttugustu öld og Brynja Björnsdóttir skrifar um réttarstöðu kvenna vegna heimilisofbeldis hér á landi frá 1800 til 1940.

Í flokknum Saga og miðlun skrifar Súsanna Margrét Gestsdóttir um tækifæri og aðferðir í sögukennslu á tölvuöld. Við birtum jafnframt stutt viðtal við Sverri Jakobsson, formann þingstjórnar fimmta íslenska söguþingsins sem haldið verður í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð dagana 27.–29. maí 2021.

Kristjana Vigdís Ingvadóttir á Þjóðskjalasafni Íslands skrifar grein fyrir þáttinn Úr skjalaskápnum og fjallar um skjöl sem varða fjársöfnun Íslendinga handa Dönum í kjölfar fyrra Slésvíkurstríðsins um miðja nítjándu öld.

Guðmundur Jónsson skrifar grein til minningar um Gísla Gunnarsson, prófessor emeritus í sagnfræði, sem lést í apríl.

Loks eru birtir sjö ritdómar og ein ritfregn um nýleg verk á sviði sagnfræði.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.