Helgi Skúli Kjartansson

Helgi Skúli Kjartansson (f. 1949) er prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann lauk cand. mag. prófi í sagnfræði frá HÍ árið 1976 en stundar nú doktorsnám í íslenskum bókmenntum við sama skóla. Rannsóknasvið Helga er fjölbreytt og spannar allt frá landnámi Íslands til vesturferða og sögu Íslands á 20. öld. Í gegnum tíðina hefur Helgi Skúli unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir Sögufélag og á 70 ára afmæli hans, árið 2019, kom út afmælisritið Nýtt Helgakver, greinasafn til heiðurs honum.

 

Bækur eftir höfund