Í fjarska norðursins og Konur sem kjósa tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Miðvikudaginn 2. desember var tilkynnt um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Það gleður okkur að segja frá því að tvær bóka Sögufélags árið 2020 hafa verið tilnefndar í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis: Í fjarska norðursins eftir Sumarliða R. Ísleifsson og Konur sem kjósa eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur. 
 
Umsögn dómnefndar um Í fjarska norðursins
„Höfundi tekst að færa lesendum efni rannsóknar sinnar á mjög aðgengilegan og skýran hátt, þar sem hann varpar ljósi á rúmlega 1000 ára viðhorfasögu gagnvart íbúum þessara eyja. Bókin er glæsilegt og eigulegt rit, fallega hönnuð og vel myndskreytt.“
 
Umsögn dómnefndar um Konur sem kjósa
„Bókin er afrakstur mikilvægrar og vandaðrar fræðilegrar rannsóknar á jafnréttisbaráttunni á Íslandi í 100 ár, en einnig á stjórnmála- og menningarsögunni. Uppsetning bókarinnar er áhugaverð og hönnunin nýstárleg þar sem fjöldi ljósmynda, veggspjalda og úrklippa eru notaðar til að glæða söguna lífi.“