Höfundur
Johann Anderson
Útgefandi
Sögufélag
Útgáfuár
2013
ISBN
9789935466006
Blaðsíðufjöldi
292
Ritstjóri
Már Jónsson og Gunnar Þór Bjarnason
Myndaritstjóri
Unavailable
Tegund
16.-18. öld, Heimildaútgáfa, Menningarsaga, Þýðingar

Frásagnir af Íslandi ásamt óhróðri Göries Peerse og Dithmars Blefkens um land og þjóð

Johann Anderson

4.900kr.

„Deilugjarnir og illviljaðir, hefnigjarnir, fláráðir og þrællyndir, óhófsamir, lostafullir og saurlífir, svikulir og þjófóttir. Hvaða ódyggða er ekki að vænta hjá fólki sem dvelst á eyðilegu landi og stundar sjó í ótakmörkuðu sjálfræði, án aðhalds samviskunnar, eftirliti og utanaðkomandi aga?“

Þannig lýsti Johann Anderson, borgarstjóri í Hamborg, Íslendingum í umdeildu riti sínu um land og þjóð sem gefið var út ytra 1746. Verkið birtist hér í fyrsta sinn á íslensku, auk andmæla Jóns Þorkelssonar, rektors Skálholtsskóla. Í bókinni eru jafnframt endurprentaðar alræmdar Íslandslýsingar þeirra Göries Peerse og Dithmars Blefkens frá 16. öld. Öll þessi skrif eiga erindi um okkar daga þegar ímynd Íslands á alþjóðavettvangi er í brennidepli.

Már Jónsson og Gunnar Þór Bjarnason sáu um útgáfuna, þýddu og rituðu inngang.

Áskrift að Yfirrétti á Íslandi

Hægt er að skrá sig í áskrift á öllum tíu bindunum sem væntanleg eru á næstu árum. Áskrifendur fá 30% afslátt á bókunum, kröfu í heimabanka og bækurnar sendar heim strax við útkomu þeirra.